Aðalsíða

Forritunarkeppnin 2010 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: ragnargeir   
Þriðjudagur, 09. mars 2010 09:05

Hin árlega Forritunarkeppni framhaldsskólanna verður haldin helgina 26-27. mars í nýjum húsakynnum Háskólans í Reykjavík í Nauthólsvík. Forritunarkeppnin er keppni fyrir alla nemendur í framhaldsskólum sem hafa áhuga á hönnun, forritun og tölvum.

Keppnin fer fram laugardaginn 27. mars í Háskólanum í Reykjavík. Föstudaginn 26. mars munu keppendur hittast í HR þar sem fyrirkomulag keppninnar er skýrt og þeir fá úthlutað vinnuaðstöðu. Þar gefst einnig gott tækifæri til að kynnast öðrum keppendum. Laugardaginn 27. mars hittast keppendur kl. 08:00 og fá sér morgunmat. Keppnin sjálf hefst kl. 09:00 og stendur fram á kvöld.

 Liðin þurfa að skrá sig fyrir 15. mars 2010

 Lið þarf að tilkynna þátttöku í síðasta lagi 15. mars. Þátttökutilkynning þarf að vera samþykkt af tengilið viðkomandi skóla og þátttakendum í liðinu. Skráning mun fara fram á www.forritun.is. Allar fyrirspurnir er hægt að senda á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  

 Nýherji og CCP styrkja keppnina og er til mikils að vinna

 Veitt verða fjölmörg verðlaun í keppninni:

  • Besta lið hverrar deildar úr heildarniðurstöðu 1. - 3. Sæti (Deildir: Alpha, Beta og Delta)
  • Frumlegasta lausnin
  • Besta lógó liðanna

Úr fréttatilkynningu Háskólans í Reykjavík.  Tengiliður keppninnar fyrir FSu, FAS, ME, MH og ML er Ragnar Geir Brynjólfsson.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 09. mars 2010 10:23
 
Kynningarmyndband Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: ragnargeir   
Mánudagur, 25. maí 2009 09:28
KYNNINGARMYNDBAND
UT-konur, félag kvenna í upplýsingatækni, luku nú á vordögum gerð myndbands sem ætlað er að vekja áhuga ungra stúlkna á möguleikum og fjölbreytileika þeirra starfa sem bjóðast innan upplýsingatækninnar og slá á þann útbreidda misskilning að fagið sé bara fyrir stærðfræðiséní eða nörda. Tekin voru viðtöl við konur sem starfa á ólíkum sviðum innan fagsins og og vonast er þannig til að gefa áhugaverða sýn á fagið og þau störf sem í boði eru. Titill myndbandsins er „Upplýsingatækni – Fag án landamæra“. Myndbandið má nálgast á vefsíðu SKY á slóðinni:  http://www.sky.is/utkonur-myndband.html.
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 27. maí 2009 10:22
 
Liðið 2b||!2b frá MH í 2. sæti í forritunarkeppninni Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: ragnargeir   
Miðvikudagur, 25. mars 2009 11:56

Liðið 2b||!2b sem skipað var þeim Helga Kristvin Sigurbjarnarsyni og Hirti Björnssyni sem báðir eru nemendur í Menntaskólanum við Hamrahlið varð í 2. sæti í alfa deild forritunarkeppni framhaldsskólanna sem haldin var í Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 21. mars sl. Alfa deildin er úrvalsdeild forritunarkeppninnar, ætluð þeim sem hafa stundað forritun umfram það sem kennt er í framhaldsskólum, unnið við forritun eða stundað hana sem sérstakt áhugamál. Alls kepptu 9 lið í deildinni þetta árið og allt í allt kepptu 34 lið í deildunum þrem, alfa, beta og delta.

Heimild: www.forritun.is

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 25. mars 2009 12:00
 
Hash Collision sigrar alfa deild forritunarkeppninnar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: ragnargeir   
Miðvikudagur, 25. mars 2009 12:03

Jónatan Óskar Nilsson og Sigurður Fannar Vilhelmsson úr FSu ásamt Gabríel A. Péturssyni úr FSn mynduðu liðið Hash Collision sem sigraði í Alfa-deild forritunarkeppni framhaldsskólanna þetta árið. Keppnin fór fram laugardaginn 21. mars í Háskólanum í Reykjavík. Alfa deildin er úrvalsdeild forritunarkeppninnar, ætluð þeim sem hafa stundað forritun umfram það sem kennt er í framhaldsskólum, unnið við forritun eða stundað hana sem sérstakt áhugamál. Alls kepptu 9 lið í deildinni þetta árið og allt í allt kepptu 34 lið í deildunum þrem, alfa, beta og delta.

Heimild: www.forritun.is

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 25. mars 2009 12:16
 
Lið FSu í 3. sæti í forritunarkeppni framhaldsskólanna árið 2008 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: ragnargeir   
Fimmtudagur, 22. maí 2008 14:36

Úr Veffréttum FSu árið 2008:

Liðið „FSu og FSN“ sem tók þátt í Forritunarkeppni framhaldsskólanna á laugardaginn var í Háskólanum í Reykjavík náði 3. sæti í alfa deild sem er úrvalsdeild keppninnar sem skiptist í þrjár deildir alfa, beta og delta. Liðið fékk ennfremur sérstök verðlaun fyrir frumlegustu lausnina. Alls tóku 27 lið þátt í keppninni að þessu sinni. Liðið skipuðu þeir Jónatan Óskar Nilsson frá Hvolsvelli og Sigurður Fannar Vilhelmsson frá Þorlákshöfn, báðir nemendur í FSu og Gabríel Arthúr Pétursson frá Grundarfirði, nemandi í FSN. Þess má geta að í fyrra náði lið Jónatans 2. sæti í alfa deildinni og í hitteðfyrra náði það 3. sæti í delta deildinni. Þetta er því í þriðja skiptið sem Jónatan leiðir lið til sigurs í þessari keppni.

ÖK, 2008-03-10

 
« FyrstaFyrri123NæstaSíðasta »

Síða 1 af 3

Joomla! is Free Software released under the GNU/GPL License.