|
Íslensk þýðing b2evolution |
|
|
|
|
Skrifað af: ragnargeir
|
|
Fimmtudagur, 23. október 2008 14:57 |
|
Íslensk þýðing b2evolution: Í liðinni viku hafði Francois Planque höfundur og umsjónarmaður bloggkerfisins b2evolution samband við mig og bað um að fá senda íslenska þýðingu á bloggkerfinu sem ég gerði vorið 2005 og hef síðan þá uppfært í nýjustu útgáfu af b2evolution. Þýðingin nær yfir um 60% strengja í nýjasta kerfinu, útgáfu 2.4.2. Sjá má íslensku þýðinguna og tengil á forrit.net á þessari síðu: [Tengill]. Ragnar Geir Brynjólfsson í september 2008 |
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 03. febrúar 2009 20:23 |
|
|
Fjarkennsla í forritun og útgáfa |
|
|
|
|
Skrifað af: ragnargeir
|
|
Þriðjudagur, 20. maí 2008 17:39 |
|
Forrit.net er upplýsingasíða um dreif- og fjarkennslu í forritun á framhaldsskólastigi og útgáfu henni tengdri sem unnin er af Ragnari Geir Brynjólfssyni forritunarkennara. Kennslan er skipulögð þannig að gerður er samningur við framhaldsskóla um að nemendur hans eigi kost á kennslunni. Skólinn tekur síðan áfangana inn í sína skólanámsskrá og býður þá undir sínum merkjum. Þetta fyrirkomulag hefur m.a. þann kost að nemendur viðkomandi skóla þurfa ekki að gerast nemendur annars skóla, þeir greiða ekkert fjarnámsgjald og losna við óþægindi sem fylgir því að fá fjarnám metið. Nemendur í skólum sem ekki eru með samning þurfa að skrá sig í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi, Tryggvagötu 25, 800 Selfoss. Sími 480-8100. Ragnar Geir Brynjólfsson (ragnargeir (hja) gmail.com) |
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 23. febrúar 2010 14:28 |
|
|
|
|
|
Síða 3 af 3 |