|
Lið FSu í 3. sæti í forritunarkeppni framhaldsskólanna árið 2008 |
|
|
|
|
Skrifað af: ragnargeir
|
|
Fimmtudagur, 22. maí 2008 14:36 |
|
Úr Veffréttum FSu árið 2008: Liðið „FSu og FSN“ sem tók þátt í Forritunarkeppni framhaldsskólanna á laugardaginn var í Háskólanum í Reykjavík náði 3. sæti í alfa deild sem er úrvalsdeild keppninnar sem skiptist í þrjár deildir alfa, beta og delta. Liðið fékk ennfremur sérstök verðlaun fyrir frumlegustu lausnina. Alls tóku 27 lið þátt í keppninni að þessu sinni. Liðið skipuðu þeir Jónatan Óskar Nilsson frá Hvolsvelli og Sigurður Fannar Vilhelmsson frá Þorlákshöfn, báðir nemendur í FSu og Gabríel Arthúr Pétursson frá Grundarfirði, nemandi í FSN. Þess má geta að í fyrra náði lið Jónatans 2. sæti í alfa deildinni og í hitteðfyrra náði það 3. sæti í delta deildinni. Þetta er því í þriðja skiptið sem Jónatan leiðir lið til sigurs í þessari keppni. ÖK, 2008-03-10 |
|
|
2. sæti í forritunarkeppninni árið 2007 |
|
|
|
|
Skrifað af: ragnargeir
|
|
Fimmtudagur, 22. maí 2008 14:34 |
|
Úr Veffréttum FSu árið 2007: Liðið The Union skipað Jónatan Óskari Nilssyni héðan úr FSu, bróður hans Halldóri Nilssyni Iðnskólanum í Reykjavík og Tuma Steingrímssyni frá Menntaskólanum Egilsstöðum náði 2. sæti í alfa deild forritunarkeppni framhaldsskólanna sem fór fram í Háskólanum í Reykjavík á laugardaginn var. Alls 18 lið skráðu sig í keppnina. 4 í Alfadeild, 5 i Betadeild og 9 í Deltadeild. Liðin komu frá 9 framhaldsskólum víðsvegar um landið. Jónatan og Tumi eru báðir nemendur Ragnars Geirs Brynjólfssonar forritunarkennara og kerfisstjóra í FSu. Alfa deildin er þyngst, því næst Beta deildin og Delta deildin er léttust. Lið Jónatans og félaga SUDAUST náði 3. sæti í delta keppninni í fyrra. Þá voru með honum í liði tveir nemendur frá Menntaskólanum á Egilsstöðum. Keppnin var löng og ströng, hófst kl. 8 á laugardagsmorguninn og henni lauk ekki fyrr en kl. 20 þegar úrslit voru kynnt. ÖK, 2007-03-12 12:43:00 |
|
Forritunarkeppni framhaldsskólanna árið 2003 |
|
|
|
|
Skrifað af: ragnargeir
|
|
Fimmtudagur, 22. maí 2008 14:32 |
|
Úr Veffréttum FSu árið 2003: Á laugardag fór fram forritunarkeppni framhaldsskólanna í Háskólanum í Reykjavík. Fulltrúi FSu í keppninni var Daníel Gunnarsson sem var fyrirliði liðsins FHK01. Í liði með honum voru nemendur úr MK og MH. 30 lið tóku þátt í keppninni. Lið úr MR sigraði í svokallaðri alfa deild keppninnar. ÖK, 2003-11-10 10:58:00 |
|
|
Bronsverðlaun í forritunarkeppni í FSu 2005 |
|
|
|
|
Skrifað af: ragnargeir
|
|
Fimmtudagur, 22. maí 2008 14:33 |
|
Úr Veffréttum FSu frá 2005: Um fyrri helgi var haldin í Reykjavík forritunarkeppni framhaldsskólanema. Keppt var í þremur flokkum; alfa, beta og delta. Í deltaflokknum vann bronsverðlaun sameinað lið Menntaskólans á Egilsstöðum og FSu. Fulltrúi FSu í liðinu var Jónatan Óskar Nilsson frá Hvolsvelli en Ragnar Geir Brynjólfsson kerfisstjóri FSu kennir nemendum beggja skólanna forritun. Til hamingju Jónatan! SigSig, 2005-11-07 20:21:00 |
|
Forritun í Java kemur út 2003 |
|
|
|
|
Skrifað af: ragnargeir
|
|
Fimmtudagur, 22. maí 2008 14:28 |
|
Úr Veffréttum FSu frá árinu 2003: Ragnar G. Brynjólfsson kerfisstjóri skólans gaf út bókina Forritun í Java. Það heyrir til nýjunga að bókin er ekki prentuð heldur dreifir Ragnar henni á netinu og fer þess á leit að notendur greiði dálitla upphæð inn á reikning. Hægt er að sækja bókina á vefslóðina http://www.home.is. Til hamingju með bókina og framtakið Ragnar. ÖK, 2003-08-18 11:21:00 |
|
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 22. maí 2008 14:31 |
|
|
|
|
|
|
Síða 2 af 3 |