Aðalsíða Kennslubókaútgáfa

Kennslubókaútgáfa Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: ragnargeir   
Þriðjudagur, 20. maí 2008 16:01

Bækurnar um Forritun í Java og Forritun í C# eftir Ragnar Geir Brynjólfsson litu dagsins ljós á árunum 2003-2005 og var gerð þeirra styrkt af Menntamálaráðuneytinu. Þær hafa verið kenndar í nokkrum framhaldsskólum svo sem Menntaskólanum á Egilsstöðum, Menntaskólanum í Kópavogi, Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Iðnskólanum í Reykjavík, Fjölbrautaskóla Suðurlands og Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Þær voru gerðar til að mæta þörf á námsefni sem varð til í kjölfar námsskrár fyrir framhaldsskóla sem kom út árið 1999. Þó bækurnar séu sérsniðnar að námsskránni geta þær hentað vel fyrir þá sem vilja kynna sér forritun á eigin spýtur. Mikið af efni sem tengist bókunum er aðgengilegt á netinu, svo sem mikill fjöldi sýnidæma, leystra forritunarverkefna og hljóðglæra þar sem sýnt er hvernig á að forrita skref fyrir skref. Bækurnar voru fyrst litprentaðar á Xerox Phaser 8400 vaxlitaprentara því næst í einlit á HP Laserjet P2015dn prentara, báða í eigu höfundar. Frá og með ágúst 2010 hafa þær verið fáanlegar í kiljuformi frá vefversluninni lulu.com. Smellið hér.

 

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 10. ágúst 2010 12:00
 

Joomla! is Free Software released under the GNU/GPL License.