Aðalsíða Fréttir 2. sæti í forritunarkeppninni árið 2007

2. sæti í forritunarkeppninni árið 2007 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: ragnargeir   
Fimmtudagur, 22. maí 2008 14:34

Úr Veffréttum FSu árið 2007:

Liðið The Union skipað Jónatan Óskari Nilssyni héðan úr FSu, bróður hans Halldóri Nilssyni Iðnskólanum í Reykjavík og Tuma Steingrímssyni frá Menntaskólanum Egilsstöðum náði 2. sæti í alfa deild forritunarkeppni framhaldsskólanna sem fór fram í Háskólanum í Reykjavík á laugardaginn var. Alls 18 lið skráðu sig í keppnina. 4 í Alfadeild, 5 i Betadeild og 9 í Deltadeild. Liðin komu frá 9 framhaldsskólum víðsvegar um landið. Jónatan og Tumi eru báðir nemendur Ragnars Geirs Brynjólfssonar forritunarkennara og kerfisstjóra í FSu. Alfa deildin er þyngst, því næst Beta deildin og Delta deildin er léttust. Lið Jónatans og félaga SUDAUST náði 3. sæti í delta keppninni í fyrra. Þá voru með honum í liði tveir nemendur frá Menntaskólanum á Egilsstöðum. Keppnin var löng og ströng, hófst kl. 8 á laugardagsmorguninn og henni lauk ekki fyrr en kl. 20 þegar úrslit voru kynnt.

ÖK, 2007-03-12 12:43:00

 

Joomla! is Free Software released under the GNU/GPL License.