|
Skrifað af: ragnargeir
|
|
Mánudagur, 25. maí 2009 09:28 |
KYNNINGARMYNDBAND UT-konur, félag kvenna í upplýsingatækni, luku nú á vordögum gerð myndbands sem ætlað er að vekja áhuga ungra stúlkna á möguleikum og fjölbreytileika þeirra starfa sem bjóðast innan upplýsingatækninnar og slá á þann útbreidda misskilning að fagið sé bara fyrir stærðfræðiséní eða nörda. Tekin voru viðtöl við konur sem starfa á ólíkum sviðum innan fagsins og og vonast er þannig til að gefa áhugaverða sýn á fagið og þau störf sem í boði eru. Titill myndbandsins er „Upplýsingatækni – Fag án landamæra“. Myndbandið má nálgast á vefsíðu SKY á slóðinni: http://www.sky.is/utkonur-myndband.html.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 27. maí 2009 10:22 |