|
Skrifað af: ragnargeir
|
|
Fimmtudagur, 12. ágúst 2010 16:16 |
|
Frá og með haustönn 2010 bætist nýr áfangi við: TÖL123. Efni hans er almenn tölvufræði, saga hennar og þróun til nútímans. Með þessari viðbót opnast möguleiki fyrir nemendur að taka 9 eininga pakka í tölvufræði, alla með 100 númeri. Þeir eru auk TÖL123 TÖL103 (inngangur að forritun) og TÖL113 (gagnasafnsfræði). Með þessari viðbót munu áhugasamir nemendur geta tekið alls 15 einingar í tölvufræði í fjarnámi hjá forrit.net. Nánari upplýsingar um TÖL123 má finna undir „Áfangar í boði“ í aðalvalmyndinni til vinstri. |
|
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 12. ágúst 2010 16:24 |
|
|
Skrifað af: ragnargeir
|
|
Þriðjudagur, 09. mars 2010 09:05 |
|
Hin árlega Forritunarkeppni framhaldsskólanna var haldin 27. mars í nýjum húsakynnum Háskólans í Reykjavík í Nauthólsvík. Alls tóku 5 lið þátt í Alpha deild, 7 í Beta deilld og 16 í Delta deild. Forritunarkeppnin er keppni fyrir alla nemendur í framhaldsskólum sem hafa áhuga á hönnun, forritun og tölvum. Liðið sem sigraði Alpha deildina var skipað Jónatan Óskari Nilssyni áður FSu nú Tækniskólanum, Gabríel Arthúr Péturssyni FSn og Sveini Fannari Kristjánssyni úr Tækniskólanum. Þrjú lið frá FSu og MH (eitt frá hvorum skóla og svo eitt sameinað lið) tóku þátt í Delta deild keppninnar og höfnuðu þau í 5. 10. og 14. sæti. . Þátttaka í keppninni er lærdómsrík og æskilegt er að sem flestir forritunarnemendur taki þátt í keppninni ekki endilega í von um sigur heldur til að dýpka forritunarkunnáttu sína og að vera með. |
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 06. apríl 2010 09:17 |
|
Skrifað af: ragnargeir
|
|
Mánudagur, 25. maí 2009 09:28 |
KYNNINGARMYNDBAND UT-konur, félag kvenna í upplýsingatækni, luku nú á vordögum gerð myndbands sem ætlað er að vekja áhuga ungra stúlkna á möguleikum og fjölbreytileika þeirra starfa sem bjóðast innan upplýsingatækninnar og slá á þann útbreidda misskilning að fagið sé bara fyrir stærðfræðiséní eða nörda. Tekin voru viðtöl við konur sem starfa á ólíkum sviðum innan fagsins og og vonast er þannig til að gefa áhugaverða sýn á fagið og þau störf sem í boði eru. Titill myndbandsins er „Upplýsingatækni – Fag án landamæra“. Myndbandið má nálgast á vefsíðu SKY á slóðinni: http://www.sky.is/utkonur-myndband.html. |
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 27. maí 2009 10:22 |
|
|
Hash Collision sigrar alfa deild forritunarkeppninnar |
|
|
|
|
Skrifað af: ragnargeir
|
|
Miðvikudagur, 25. mars 2009 12:03 |
|
Jónatan Óskar Nilsson og Sigurður Fannar Vilhelmsson úr FSu ásamt Gabríel A. Péturssyni úr FSn mynduðu liðið Hash Collision sem sigraði í Alfa-deild forritunarkeppni framhaldsskólanna þetta árið. Keppnin fór fram laugardaginn 21. mars í Háskólanum í Reykjavík. Alfa deildin er úrvalsdeild forritunarkeppninnar, ætluð þeim sem hafa stundað forritun umfram það sem kennt er í framhaldsskólum, unnið við forritun eða stundað hana sem sérstakt áhugamál. Alls kepptu 9 lið í deildinni þetta árið og allt í allt kepptu 34 lið í deildunum þrem, alfa, beta og delta. Heimild: www.forritun.is |
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 25. mars 2009 12:16 |
|
Liðið 2b||!2b frá MH í 2. sæti í forritunarkeppninni |
|
|
|
|
Skrifað af: ragnargeir
|
|
Miðvikudagur, 25. mars 2009 11:56 |
|
Liðið 2b||!2b sem skipað var þeim Helga Kristvin Sigurbjarnarsyni og Hirti Björnssyni sem báðir eru nemendur í Menntaskólanum við Hamrahlið varð í 2. sæti í alfa deild forritunarkeppni framhaldsskólanna sem haldin var í Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 21. mars sl. Alfa deildin er úrvalsdeild forritunarkeppninnar, ætluð þeim sem hafa stundað forritun umfram það sem kennt er í framhaldsskólum, unnið við forritun eða stundað hana sem sérstakt áhugamál. Alls kepptu 9 lið í deildinni þetta árið og allt í allt kepptu 34 lið í deildunum þrem, alfa, beta og delta. Heimild: www.forritun.is |
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 25. mars 2009 12:00 |
|
|
|
|
|
|
Síða 1 af 3 |